Húsið er vel staðsett, með snyrtilegum frágengnum garði sem snýr til suðvesturs. Sól er á veröndina sirka frá hádegi og fram á kvöld. Útgengt er á veröndina frá hjónaherbergi og frá stofu um stóra rennihurð. Veröndin er stúkuð af milli húsa, skjólgóð, yfirbyggð með skyggni og flísalögð með svörtum 60×60 Brave Coke flísahellum.**
Lóðin er að öðru leiti þökulögð. Innfelld lýsing og tenglar (fyrir jólaseríurnar) eru í þakkanti beggja megin húss. Ídráttarrör og frárennsli er klárt fyrir heitan pott í garðinum, garðkrani er tengdur. Framan við húsið er steypt bílaplan með hitalögn sem er tilbúin til tengingar.

Lýsing eigna fullbúin

Anddyri: Komið er inn í rúmgott anddyri með fataskáp.
Baðherbergi: Flísalagt 6,5 fm baðherbergi með fallegri innréttingu, upphengdu salerni, handklæðaofni og stórri sturtu, aðskilinni með gleri.
Svefnherbergi I: Inn af anddyri er 9,7 fm svefnherbergi með fataskáp. Parket á gólfi.
Hol / gangur: Frá anddyri er komið inn í stórt hol í miðrými hússins, þaðan sem gengið er inn í aðrar vistarverur. Parket á gólfum.
Eldhús: Opið inn í stofu, vönduð innrétting með góðu skápaplássi, uppþvottavél, helluborð og ofn fylgir. Góð lofthæð er í eldhúsi og sameinast það stofu á skemmtilegan hátt. Parket á gólfi.
Stofa / borðstofa: Björt og rúmgóð með stórum gluggum ásamt stórri rennihurð þar sem er útgengt á verönd til suðvesturs. Parket á gólfi. Lofthæðin í stofunni er flott (einhalla að 3,7 m) og gefur henni virkilega flott yfirbragð.
Hjónaherbergi: Er sérlega glæsilegt með stórum fataskápum, útgengi á suðvesturverönd og sér baðherbergi með sturtu. Parket á gólfi.
Baðherbergi II: Er inn af hjónaherbergi, flísalagt, með handlaug, fallegri innréttingu, handklæðaofni og sturtu.
Svefnherbergi II: Rúmgott 9,8 fm með fataskáp og mikilli lofthæð. Parket á gólfi.
Þvottahús: Rúmgott með góðri lofthæð. Vaskaskápur með tengi fyrir þvottavél og þurrkara hlið við hlið undir borðplötu. Gott pláss er til að setja upp hillur og innangengt er í bílskúrinn.
Bílskúr: Góð bílskúrshurð með rafmagnsopnara og innangengt í þvottahús. Í bílskúr er gert ráð fyrir tengi fyrir rafmagnsbíl og er hægt að setja hleðslustöðina upp hvort sem er inní skúr eða utan á klæðninguna fyrir framan bílskúrinn. Hleðslustöðin sjálf fylgir ekki með.
Bílaplan: Stórt steypt bílaplan með 2 stæðum, ílögð en ótengd snjóbræðsla.
Lóðin: Er fullfrágengin, steypt bílaplan með hitalögn fyrir framan hús, tyrfð lóð og flísalögð verönd út frá stofu og hjónaherbergi. Búið er að leggja ídráttarrör fyrir heitan pott frá bílskúr út í garð og ganga frá affalli. Garðkrani utan á húsi lóðarmegin.
Að auki: Filmur verða settar í hurðar og rúður við hurðar með húsnúmeri. Hægt er að fá nýja filmu með húsnúmeri og nöfnum íbúa í rúðuna fyrir ofan bréfalúguna sé þess óskað (sjá bónus neðst). Filmur verða einnig settar í baðherbergisrúður á göflum.

Sorptunnuskýli: Þau verða sérsmíðuð af okkur og koma á bílaplan, á lóðamörk yfir brunnum, fyrir 3 tunnur og klædd með sama efni og húsið, bland af bronsaðri ál-báru og bambus.